Ferlið
Þú byrjar á að biðja um tíma í mælingu hér á síðunni okkar. Þegar við höfum fundið tíma sem hentar þér kemur þú til okkar í Fossvoginn. Það er gott að sjá myndir svo við fáum betri hugmynd á fötunum sem þú vilt.
Við byrjum á að hjálpa þér að finna rétta efnið fyrir þig og leggjum ráð á tölum eða hnöppum og fóðri.
Að efnisvali loknu dembum við okkur í mælingar, þá þú segir þú til um hvernig snið þú vilt. Við notum sérstök mælingaföt sem viðskiptavinir okkar klæðast svo þeir sjái betur fyrir sér hvernig fötin koma til með að verða.
Eftir mælinguna setjumst við niður og ræðum hönnunarmöguleika - þá er tekin ákvörðun um vasa, boðunga, kraga o.s.frv. En ef þú treystir þér ekki til að velja, þá getur þú látið sérfræðing um það.
Þegar fötin koma höfum við samband og finnum tíma fyrir mátun, þá förum við yfir hvort það sé eitthvað sem þarf að bæta og bætum það ef þarf. Þegar fötin eru tilbúin til afhendingar er kominn tími til að finna réttu aukahlutina til að klára lúkkið. Flott bindi og vasaklútur gera gæfumuninn.
Þegar þú ert búinn að fara í gegn um þetta ferli og við komnir með sniðið þitt getur þú verslað á betri kjörum hjá okkur. Núna þurfum við ekki að verja dýrmætum tíma í að mæla þig og láta breyta fötunum, við notum einfaldlega málin sem við tókum síðast.
Búast má við að biðin verði a.m.k 4 og við kvetjum þig til að láta vita ef þér liggur mikið á.