Spurt og svarað
-
Hvað er afhendingartíminn langur?
4-6 vikur, það fer eftir efni sem þú velur og hversu mikinn handsaum þú vilt.
-
Er hægt að fá föt á skemmri tíma en 3 vikur?
Oft er hægt að redda einhverju svona, sendu okkur skeyti og við reynum að leysa þetta með þér.
-
Hvar eru fötin saumuð?
Jakkafötin, skyrtur og frakkar eru saumuð með stolti í Kína. Úr efnum sem koma héðan og þaðan úr heiminum. Hægt er að afla sér upplýsinga um efnin okkar hér.
Bindi og vasaklútar eru framleidd á Ítalíu.
-
Get ég keypt stakar flíkur?
Já, jakka, buxur, vesti og frakka. Allar vörurnar okkar eru fáanlegar stakar.
-
Hvaða vörur fást hjá ykkur?
Helst er að fá jakkaföt, skyrtur, frakka, bindi og vasaklúta.
-
Seljið þið sérsaum?
Já, við seljum aðeins sérsaumuð föt.
-
Getið þið gert smóking?
Já!
-
Hvað kosta föt hjá ykkur?
Þú getur nálgast verðskrána hér.
-
Hvenær er opið hjá ykkur?
Það er aðeins opið eftir tímabókunum.