Efnin

FKR Reykjavík selur nær aðeins 100% náttúruleg efni. Í grunnverðflokki okkar AA er til dæmis helst að finna 100% ullarefni (Super 110’s) frá Filarte frekar létt efni sem henta best í jakkaföt.

Einnig erum við með efni frá VBC, Drago, Loro Piana, Dugdale Bros & Co., Carlo Barberis og Ferla svo fátt sé nefnt.

Við erum með efni fyrir hvaða tilefni sem er, allt frá fínustu smóking efnum og alveg til gallaefnis eða flauels, skemmtileg árstímabundin efni sem henta vel fyrir stakan jakka sem þú vilt nota með gallabuxum og vatnsfráhindrandi efni fyrir yfirhafnir.

Ef þið eruð með spurningar um sérstaka verðflokka eða eruð að leita að einhverju sérstöku hvetjum við ykkur að hafa samband við okkur svo við getum hjálpað.

Verðin er hægt að nálgast hér neðar á síðunni.